Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
F

Embætti varðstjóra hjá Fangelsismálastofnun ¿ Fangelsið Kvíabryggju

starfatorg

Starfslýsing

Frestur: 31.03.2026
Hjá Fangelsismálastofnun eru lausar til umsóknar tvær stöður varðstjóra við Fangelsið Kvíabryggju. Gert er ráð fyrir því að forstjóri Fangelsismálastofnunar skipi í embættin til fimm ára frá og með 1. júní 2026. Um ný embætti er að ræða sem er liður í umbótum og endurskipulagningu á starfsstigum innan fangelsanna. Sá sem hlýtur skipun í embætti mun þurfa að sækja stjórnunarnámskeið á vegum Fangelsismálastofnunar eða námskeið sem stofnunin ákveður að millistjórnendur þurfi að sækja. Helstu upplýsingar um vinnustaðinn og starfið Fangelsismálastofnun heyrir undir dómsmálaráðuneytið. Stofnunin fer með yfirstjórn fangelsismála, m.a. umsjón með rekstri fangelsa og tryggir að fullnusta refsinga fari fram með öruggum og skilvirkum hætti í samræmi við lög um fullnustu refsinga nr. 15/2016. Stofnunin leggur áherslu á vellíðan í starfi og jákvæðan starfsanda. Hjá stofnuninni starfa alls um 160 starfsmenn, flestir fangaverðir, á fimm mismunandi starfsstöðvum, fjórum fangelsum og skrifstofu. Í Fangelsinu Kvíabryggju starfa 13 fangaverðir. Næsti yfirmaður varðstjóra er aðalvarðstjóri við Fangelsið Kvíabryggju.
Sækja um →

Launamat

1.161.332
kr / mánuð
Heimild: Ársreikningur fyrirtækis
Nánar: company avg (2023)
Ársstofa: 13.935.984 kr
Traust: 70%

Fyrirtæki

Fangelsismálastofnun ríkisins
public
Meðallaun 1.161.332 kr/mán
Starfsmenn 160
Gögn úr ársreikningi 2023
Sjá fyrirtæki →