Laust er til umsóknar 100% starf sjúkraþjálfara í dagvinnu hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands, HVE Stykkishólmi. Starfshlutfall er umsemjanlegt. Á HVE Stykkishólmi er starfrækt Háls- og bakdeild, dagdeild fyrir fólk með einkenni frá hálsi og/eða baki og þjónar hún öllum landsmönnum. Einnig sinna sjúkraþjálfarar sjúklingum á sjúkradeild, íbúum hjúkrunarheimilisins Systraskjóls og göngudeild eftir þörfum.