Ertu að leita að sumarstarfi með frábæru samstarfsfólki? Við erum að leita að öflugu og jákvæðu fólki með ríka þjónustulund í sumarafleysingastörf á ýmsar starfsstöðvar. Um er að ræða störf á Heilsugæslunni Árbæ, Efstaleiti, Firði, Hamraborg og Miðbæ. Við erum líka að leita að sumarfólki í Heimahjúkrun heilsugæslunnar. Það eru fjölmörg spennandi störf í boði með ráðningartíma frá 6 vikum upp í 3 mánuði. Passar þú í hópinn?