Heimahjúkrun HH leitar eftir hjúkrunarfræðingum eða hjúkrunarnemum í sumarstörf. Um er að ræða tímabundið vaktavinnustarf á morgun-, kvöld- og helgarvöktum með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 40-100% eða skv. samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí eða eftir nánara samkomulagi. Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingsmiðuð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).