Utanríkisráðuneytið sendir reglulega sérfræðinga til að sinna tímabundnum verkefnum á vettvangi á sviði þróunarsamvinnu. Um er að ræða fjölbreytt störf í krefjandi umhverfi á starfsstöðvum ráðuneytisins í Afríku. Samkvæmt lögum nr. 121/2008 um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands er utanríkisráðuneytinu heimilt að ráða starfsmenn til tímabundinna starfa við afmörkuð verkefni í þróunarsamvinnu erlendis. Ekki er um fastráðningu að ræða og hámarkslengd ráðningar eru fimm ár. Með þessari auglýsingu er áhugasömum boðið að skrá sig á sérfræðingalista á sviði þróunarsamvinnu. Áréttað er að skráning þessi felur ekki í sér skuldbindingu til ráðningar, hvorki af hálfu utanríkisráðuneytisins né þeirra einstaklinga sem lýst hafa áhuga á að sinna tímabundnum verkefnum á vegum ráðuneytisins. Ráðuneytið metur í hverju tilviki fyrir sig hvaða þekking, kunnátta eða reynsla kemur að mestum notum við ráðningar í einstök verkefni og áskilur sér rétt til að vera ekki bundið af framangreindri skrá.