Utanríkisráðuneytið sendir reglulega sérfræðinga til að sinna tímabundnum borgaralegum verkefnum á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, stofnana Sameinuðu þjóðanna eða annarra alþjóðastofnana á sviði alþjóða- og öryggismála. Um er að ræða fjölbreytt störf í krefjandi umhverfi á ólíkum starfsstöðvum víða um heim. Samkvæmt lögum nr. 73/2007 um friðargæsluna er utanríkisráðuneytinu heimilt að halda lista yfir fólk sem reiðubúið er að takast á hendur friðargæsluverkefni erlendis. Á grundvelli hennar er síðan ráðið tímabundið í umrædd verkefni. Ekki er um fastráðningu að ræða og hámarkslengd ráðningar eru tvö ár. Með þessari auglýsingu er áhugasömum boðið að skrá sig á umræddan lista og eldri listi fellur úr gildi. Áréttað er að skráning þessi felur ekki í sér skuldbindingu til ráðningar, hvorki af hálfu utanríkisráðuneytisins né þeirra einstaklinga sem lýst hafa áhuga á að sinna tímabundnum verkefnum á vegum ráðuneytisins. Ráðuneytið metur í hverju tilviki fyrir sig hvaða þekking, kunnátta eða reynsla kemur að mestum notum við ráðningar í einstök verkefni og áskilur sér rétt til að vera ekki bundið af framangreindri skrá.