Landspítali auglýsir laus til umsóknar sumarstörf í öryggisþjónustu. Leitað er eftir jákvæðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingum með ríka þjónustulund og sem eru sveigjanlegir í starfi. Viðkomandi þarf að búa yfir mikilli samskiptahæfni og getu til að mæta þörfum ólíkra hópa, hafa auga fyrir umbótum og stuðla að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi á fjölþjóðlegum vinnustað. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og býður upp á lifandi starfsumhverfi og gefandi samstarf. Öryggisþjónusta skiptist í eftirlit og vaktmiðstöð. Eftirlit felst meðal annars í að bregðast við útköllum á deildir, reglulegum eftirlitshringjum og aðstoð við rekstrarþjónustu eftir þörfum. Vaktmiðstöð fylgist með öryggis- og eftirlitskerfum spítalans. Meginhlutverk öryggisþjónustu er að tryggja góða þjónustu fyrir allar deildir spítalans, (s.s. flutningsþjónustu, öryggisþjónustu, símaþjónustu, móttökuþjónustu) og ýmsa almenna þjónustu sem styður við daglega starfsemi á spítalanum. Leitast er eftir fólki í vaktavinnu. Unnið er á 8 tíma vöktum, 12 tímar um helgar, allan sólahringinn.