Við leitum eftir jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum til að starfa í býtirúri á hinum ýmsu deildum Landspítala. Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur. Við stefnum á að vera einn besti vinnustaður landsins sem býður upp á gott starfsumhverfi og samkeppnishæf kjör. Vilt þú taka þátt í vegferðinni með okkur? Í þessum starfaflokki er eingöngu ráðið í tímabundnar stöður s.s. Störf við verkefni sem standa í tvo mánuði eða skemur Störf við afleysingar sem ekki er ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt Allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega. Umsóknum þessum verður ekki svarað sérstaklega heldur munu stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða starf. Að loknum umsóknarfresti verður birt ný auglýsing. Ef þú hefur áhuga á að vera áfram á skrá, ert þú velkomin/n að sækja um að nýju.