Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur. Við stefnum á að vera einn besti vinnustaður landsins sem býður upp á gott starfsumhverfi og samkeppnishæf kjör. Veitt er markviss og einstaklingshæfð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum. Vilt þú taka þátt í vegferðinni með okkur? Í þessum starfaflokki er eingöngu ráðið í tímabundnar stöður s.s. Störf við verkefni sem standa í tvo mánuði eða skemur Störf við afleysingar sem ekki er ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt Allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega. Í boði eru störf vítt og breitt um spítalann. Hvar liggur þinn áhugi? Vinsamlega skráið í "Annað" reitinn óskir um svið/deild.Sækja þarf um auglýst störf sérstaklega. Umsóknum þessum verður ekki svarað sérstaklega heldur munu stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða starf. Að loknum umsóknarfresti verður birt ný auglýsing. Ef þú hefur áhuga á að vera áfram á skrá, ert þú velkomin/n að sækja um að nýju.