Ertu góður liðsmaður og langar þig í sumarstarf í hvetjandi og lærdómsríku umhverfi? Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) óskar eftir hjúkrunarfræðingum/hjúkrunarfræðinemum í sumarafleysingu á barnadeild. Um er að ræða vaktavinnu í fjölbreyttu starfsumhverfi. Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á lærdóm, fagmennsku og mannlega nálgun. Hvað gerir starfið spennandi: Reynsla sem skiptir máli Tækifæri til að læra í hvetjandi vinnuumhverfi Teymisvinna Fagleg þróun Vaktavinna Góð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í okkar frábæra teymi og fá verðmæta reynslu í hjúkrun, þá er þetta sumarstarf fyrir þig! Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.