Sjúkraliðar óskast til starfa á hjúkrunarheimili HSU. HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós. Í boði eru störf á eftirfarandi hjúkrunarheimilum: Móberg, Selfossi Foss- og Ljósheimar, Selfossi Hraunbúðir, Vestmannaeyjum Vinsamlegast skráið óskir um starfsstöð í reitinn " Annað" í umsóknarferlinu. Öll hjúkrunarheimili HSU byggja á hugmyndafræði Eden stefnunnar og lagt er upp úr einstaklingsbundinni endurhæfingu íbúa í leik og starfi. Á Móbergi eru fimm almennar hjúkrunareiningar þar sem 12 einstaklingar búa á hverri einingu. Á Fossheimum og Ljósheimum eru 44 einstaklingsherbergi en 4 þeirra eru ætluð fyrir skammtímainnlagnir Á Hraunbúðum eru 30 hjúkrunarrými, 4 dvalarrými og 1 hvíldarrými auk annarrar þjónustu við eldri borgara.