Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum þroskaþjálfa til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur.
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum sérkennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 530 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.
Umsóknarfrestur er til 7. apríl 2026.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.