Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa á heimili fatlaðs fólks - Erluás
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða þroskaþjálfa eða annan háskólamenntaðan sérfræðing til starfa á heimili fyrir fatlað fólk, staðsett í Áslandi. Gott væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Starfshlutfall er 80-100% og er unnið í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið á morgun, kvöld, nætur - og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrund Brynjólfsdóttir forstöðuþroskaþjálfi, í síma 585-5764, netfang: hrundb@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2026
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.