Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Umbra - þjónustumiðstöð stjórnarráðsins

Sviðsstjóri almennrar þjónustu

Umbra - þjónustumiðstöð stjórnarráðsins · Skuggasund 1 , 101 Reykjavík
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-15

Viltu leiða þjónustu sem skiptir máli fyrir alla stjórnsýsluna? 

Sviðsstjóri almennrar þjónustu  

Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins óskar eftir að ráða öflugan og framsýnan leiðtoga til að stýra þjónustusviði stofnunarinnar. Um er að ræða lykilstöðu þar sem viðkomandi leiðir þjónustu sem styður daglega starfsemi ráðuneyta og annarra ríkisaðila. 

 

Um starfið 

Sviðsstjóri almennrar þjónustu ber ábyrgð á rekstri og þróun fjölbreyttrar þjónustu, þar á meðal: 

  • Þjónustuveri fyrir notendur Ísland.is og símsvörun fyrir ráðuneyti 
  • Öryggisakstri ráðherra 
  • Fræðsluþjónustu fyrir ráðuneyti (Stjórnarráðsskólinn) 

Sviðsstjóri ber ábyrgð á að þjónustan sé skilvirk, áreiðanleg og í takt við þarfir notenda og leiðir þróun og umbætur á þjónustu. 

Starfið felur í sér náið samstarf við önnur svið innan Umbru og virka þátttöku í stefnumótun. 

 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Leiða og þróa starfsemi sviðsins og stjórnun þess 
  • Tryggja gæði, samræmi og framúrskarandi þjónustu 
  • Greina tækifæri til umbóta og aukins samrekstrar þvert á ráðuneyti 
  • Fylgja eftir árangri lykilmælikvarða og þjónustugæðum 

 

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi 
  • Reynsla af rekstri þjónustu og stjórnun 
  • Sterk leiðtogahæfni og þjónustumiðuð hugsun 
  • Góð greiningar- og skipulagshæfni 
  • Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni 
  • Þekking á opinberu umhverfi er kostur 
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti 

 

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.  Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum. 
 
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) og Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511-1225. 

Sækja um →

Launamat

1.233.000
kr / mánuð
Heimild: VR Launakönnun
Nánar: VR: Sviðsstjóri
Ársstofa: 14.796.000 kr
Traust: 80%

Fyrirtæki

Umbra
public
Meðallaun 1.298.320 kr/mán
Starfsmenn 52
Gögn úr ársreikningi 2023
Sjá fyrirtæki →

Fleiri störf

Umbra - þjónustumiðstöð stjórnarráðsins
Kerfisstjóri
1.000.000 kr