Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Umbra - þjónustumiðstöð stjórnarráðsins

Kerfisstjóri

Umbra - þjónustumiðstöð stjórnarráðsins · Skuggasund 1 , 101 Reykjavík
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-15

Viltu vinna með nýjustu skýjalausnir og taka þátt í rekstri mikilvægra upplýsingakerfa? 

 

Kerfisstjóri 

Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins óskar eftir að ráða kerfisstjóra til starfa. Við óskum bæði eftir reyndum sérfræðingum og metnaðarfullum einstaklingum sem vilja þróast í faginu. 

 

Sem kerfisstjóri hjá Umbru verður þú hluti af teymi sem ber ábyrgð á stöðugum og öruggum rekstri, ásamt framþróun upplýsingatækniþjónustu fyrir ráðuneyti og aðra ríkisaðila. Við erum í spennandi vegferð við að auka samrekstur, bæta tæknilega innviði og skapa umhverfi sem styður við aukna sjálfvirkni og samvinnu hjá ríkisaðilum. 

 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

·       Rekstur og viðhald skýjalausna og staðbundinna kerfa 

·       Innleiðing nýrra kerfa og lausna (m.a. öryggislausna frá Microsoft)  

·       Eftirlit með kerfum ásamt atvikastjórnun og bilanagreiningu 

·       Aðstoð við lausn tæknilegra atvika og þjónustubeiðna 

·       Þátttaka í teymisvinnu við þróunar- og umbótaverkefni  

 

Menntunar- og hæfniskröfur  

·       Menntun í tölvunarfræði, kerfisfræði eða á tengdu sviði 

·       Reynsla af kerfisrekstri, skýjalausnum og öryggismálum er kostur 

·       Þekking á Microsoft 365 skýjalausnum 

·       Öguð vinnubrögð og rík öryggisvitund 

·       Metnaður til að ná árangri og hæfni til að tileinka sér nýjungar og breytingar 

·       Góð samstarfshæfni 

·       Rík þjónustulund og skipulagshæfni  

·       Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti 

 

Hvað við bjóðum 

·       Fjölbreytt og krefjandi verkefni 

·       Tækifæri til að vinna með nýjustu skýja- og öryggislausnir 

·       Traust og sveigjanlegt vinnuumhverfi 

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.  Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum. 
 
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) og Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511-1225. 

Sækja um →

Launamat

1.000.000
kr / mánuð
Heimild: VR Launakönnun
Nánar: VR: Kerfisstjóri
Ársstofa: 12.000.000 kr
Traust: 80%

Fyrirtæki

Umbra
public
Meðallaun 1.298.320 kr/mán
Starfsmenn 52
Gögn úr ársreikningi 2023
Sjá fyrirtæki →

Fleiri störf

Umbra - þjónustumiðstöð stjórnarráðsins
Sviðsstjóri almennrar þjónustu
1.233.000 kr