Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Kársnesskóli

Umsjónarkennari á miðstigi í Kársnesskóla

Kársnesskóli · Kópavogsbraut 58, 200 Kópavogur
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-10

Kársnesskóli óskar eftir drífandi, kraftmiklum kennurum á miðstig til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi

Laus eru til umsóknar umsjónarkennarastaða á miðstigi skólans.  Kársnesskóli er framsækinn grunnskóli í vesturbæ Kópavogs sem byggður er á góðum gildum en er nú nýr skóli með nemendur í 5. - 10. bekk. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti og að allir nemendur nái árangri.  Í skólanum eru um 400 nemendur. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Í Kársnesskóla eru allir nemendur í 5.-10. bekk með spjaldtölvur og áhersla er á gott samstarf í góðum teymum. 

Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja.

Ráðningartími og starfshlutfall Um er að ræða 100% framtíðarstarf

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn kennsla og umsjón á miðstigi
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfsins
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við  foreldra og fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa góðan skólabrag

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg
  • Áhugi á að vinna í góðu teymi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ 

Upplýsingar gefur Sigrún Valdimarsdóttir skólastjóri í síma 441-4600 og í gegnum netfangið sigrunv@kopavogur.is 

Öll, óháð kyni eru hvött til að sækja um starfið. 

 

 

 

 

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%