Kársnesskóli auglýsir eftir metnaðarfullum aðstoðarskólastjóra sem hefur farsæla starfsreynslu úr grunnskólastarfi og er tilbúinn að starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans í teymi stjórnenda frá og með 1. ágúst 2026, tímabundið í eitt skólaár.
Í Kársnesskóla eru um 400 nemendur í 5. - 10. bekk og um 60 starfsmenn. Í skólanum er starfað eftir hugmyndafræði ,,Uppeldi til ábyrgðar" sem kennir sjálfsstjórn og ýtir undir hæfni til að taka ábyrgð á eigin orðum og gerðum.
Gildi skólans eru ábyrgð, ánægja, þekking og virðing