Virkni og vellíðan er verkefni á vegum Kópavogsbæjar sem miðar að heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri í sveitarfélaginu. Þátttakendur í verkefninu Virkni og vellíðan fá tækifæri á því að stunda hreyfingu í því félagi sem stendur næst heimili þeirra í Kópavogi. Okkar helsta markmið er það að stuðla að bættri líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu bæjarbúa í Kópavogi og stuða jafnframt að farsælli öldrun.
Verkefnastjóri þjálfar, stýrir og heldur utan um verkefnið með áherslu á félagsmiðstöðvar eldra fólks í Kópavogi. Viðkomandi heldur utan um hreyfiframboð í félagsmiðstöðvum Kópavogs og er tengiliður Virkni og vellíðan við þær. Verkefnastjóri starfar náið með öðrum verkefnastjórum Virkni og vellíðan og hjálpar til við ýmis verkefni og viðburði á vegum verkefnisins.