Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Kópavogsbær

Stuðningsaðili á Velferðarsviði

Kópavogsbær · Vallakór 4, 203 Kópavogur
PART_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-30

Velferðarsvið Kópavogsbæjar leitar að jákvæðu og duglegu starfsfólki til að sinna fjölbreyttri stuðningsþjónustu við einstaklinga, börn, unglinga og fullorðna í daglegu lífi innan og utan heimilis. Markmið þjónustunnar hjá Kópavogsbæ er að veita persónulega og einstaklingsmiðaða þjónustu.

Um er að ræða starf sem miðar að hvatningu við félagslega þátttöku, tómstundir og uppbyggilega samveru. Hjá börnum og unglingum getur einnig verið um heimanámsaðstoð að ræða og hjá fullorðnum aðstoð við heimilishald og við athafnir daglegs lífs.

 

Hæfniskröfur

  • Jákvæðni og áhugi á að starfa með einstaklingum á öllum aldri
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi, samviskusemi og reglusemi
  • Gott er að umsækjandi hafi reynslu af starfi með fólki með fötlun (en þó ekki skilyrði þar sem það er misjafnt eftir málum).
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Æskilegt er að töluð sé íslenska 

 

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Vinnutími á mánuði er frá 8 til 30 klst. en fer það eftir þörfum hvers einstaklings. 
  • Vinnutími er breytilegur, virkir dagar og helgar, oft eftir kl. 15:00 á virkum dögum en sumir þjónustuþegar hafa þörf fyrir morgun- og eða kvöldtíma. 
  • Um er að ræða tímavinnu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélag. 

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningar.

Þau sem ráðin eru til starfa hjá velferðarsviði Kópavogs þurfa að skila sakavottorði og veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá. 

Upplýsingar um starfið veitir Þóra Ágústa Úlfsdóttir, thoraagusta@kopavogur.is

Tekið er við umsóknum í starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs.

 

 

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%