Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum laust til umsóknar.
Við leitum að kraftmiklum og framsæknum leiðtoga sem hefur skýra sýn á þróun framhaldsskólastigsins og getu til að leiða öflugt starf Menntaskólans á Egilsstöðum inn í framtíðina. Menntaskólinn á Egilsstöðum er áfangaskóli sem býður upp á fjölbreytt nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum, nám á starfsbraut og framhaldsskólabraut. Þá býður skólinn einnig upp á fjarnám. Starfsmenn skólans eru um 45, fjöldi nemenda í dagskóla er um 225 og nemendur í fjarnámi eru um 200. Á heimavist skólans dvelja um 100 nemendur.
Á næstu misserum verður lögð aukin áhersla á að styrkja stjórnsýslu og umgjörð framhaldsskóla, auk gagnadrifinnar ákvarðanatöku. Saman þurfum við að tryggja að skólarnir búi nemendur undir framtíð sem einkennist af hraðri tækniþróun, nýjum hæfnikröfum og síbreytilegu samfélagi. Við leitum því að öflugum, jákvæðum og framsýnum leiðtoga sem hefur vilja og getu til að starfa með starfsfólki og nemendum að áframhaldandi þróun skólans.