Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir embætti skólameistara Menntaskólans við Hamrahlíð laust til umsóknar.
Við leitum að kraftmiklum og framsæknum leiðtoga sem hefur skýra sýn á þróun framhaldsskólastigsins og getu til að leiða öflugt starf Menntaskólans við Hamrahlíð inn í framtíðina. Menntaskólinn við Hamrahlíð er framhaldsskóli sem býður upp á bóknámsbrautir til stúdentsprófs, þ.e. félagsfræðabraut, málabraut, náttúrufræðabraut, listmenntabraut, listdansbraut og opna braut. Einnig starfrækir skólinn IB-námsbraut sem leiðir til alþjóðlegs stúdentsprófs. Við skólann er einnig fjölnámsbraut ætluð nemendum sem þurfa einstaklingsmiðað nám og þá á skólinn í samstarfi við Menntaskóla í tónlist. Þessar fjölbreyttu námsleiðir kalla á víðtækt samráð og samstarf við ótal hagaðila. Starfsmenn skólans eru um 100 og fjöldi nemenda um 1.100.
Á næstu misserum verður lögð aukin áhersla á að styrkja stjórnsýslu og umgjörð framhaldsskóla, auk gagnadrifinnar ákvarðanatöku. Saman þurfum við að tryggja að skólarnir búi nemendur undir framtíð sem einkennist af hraðri tækniþróun, nýjum hæfnikröfum og síbreytilegu samfélagi. Við leitum því að öflugum, jákvæðum og framsýnum leiðtoga sem hefur vilja og getu til að starfa með starfsfólki og nemendum að áframhaldandi þróun skólans.