Við leitum að öflugum og árangursdrifnum stjórnanda til að leiða nýtt svið hjá Steypustöðinni. Um er að ræða umfangsmikið stjórnunarstarf þar sem ábyrgð nær yfir daglega flotastýringu, viðhald, eignastýringu og áframhaldandi þróun á vörubílaflota fyrirtækisins.
Flotinn er einn af burðarásum starfseminnar og þjónar fjölbreyttum rekstrareiningum, þar á meðal steypuframleiðslu, einingaframleiðslu, námuvinnslu, efnisflutningum og útflutningi. Á sviðinu starfa um 70 manns og flotinn samanstendur af steypubílum, steypudælum, flotbílum, dráttarbílum og öðrum sérhæfðum ökutækjum. Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í að hámarka nýtingu, tryggja rekstraröryggi og leiða fram umbætur í gegnum markvissa breytingastjórnun, stafræna þróun og gagnadrifna ákvarðanatöku.
Þetta er einstakt tækifæri til að móta og þróa nýtt lykilsvið innan fyrirtækis sem gegnir mikilvægu hlutverki í íslenskum innviðum. Réttur aðili fær víðtækt svigrúm til að hafa áhrif, byggja upp sterkt teymi og skapa raunverulegan árangur í rekstri.