Við leitum eftir skipulögðum hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á geðhjúkrun og stjórnun, teymisvinnu og umbótastarfi á líflegri deild þar sem enginn dagur er eins.
Bráðalegudeild lyndisraskana er 17 rúma legudeild sem sinnir móttöku, greiningu og meðferð sjúklinga með alvarlegar og bráðar geðraskanir. Deildin sérhæfir sig m.a. í meðferð sjúklinga með átraskanir og í greiningu og meðferð á konum með alvarlegar geðraskanir og/ eða ef grunur leikur á tengslaröskun á meðgöngu og eftir fæðingu. Starfsemi deildarinnar er í mikilli þróun og umbótastarf er mikið. Unnið er að eflingu þverfaglegrar teymisvinnu.
Á deildinni er mjög góður starfsandi, frábært samstarfsfólk og tækifæri til að þróa faglega sérþekkingu og hæfni í geðhjúkrun. Ráðið verður í starfið frá 1. maí 2026 eða eftir samkomulagi.