Auglýst er tímabundin staða deildarstjóra stoðþjónustu í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2026 til 31. júlí 2027.
Í Sunnulækjarskóla mynda kennarar og aðrir fagaðilar árgangs árgangateymi. Árgangateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa í samvinnu við sína deildarstjóra sem vinna í stjórnendateymi. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp jákvæðan starfsanda og sterkt lærdómssamfélag í skólanum.
Hlutverk deildarstjóra:
Deildarstjóri situr í stjórnendateymi skólans og starfar samkvæmt stefnu skólans sem tekur m.a. mið af menntastefnu Sveitafélagsins Árborgar, aðalnámskrá grunnskóla, lögum og reglugerðum um grunnskóla og lögum um farsæld barna.
Deildarstjóri fer með mannaforráð og daglega verkstjórn. Hann þarf að vera öðrum góð fyrirmynd og öflugur ráðgjafi í krefjandi starfsumhverfi. Því skiptir þekking deildarstjóra á viðfangsefnum skóla- og uppeldismála, farsæld og stuðningsúrræða gríðarlega miklu máli.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.