Auglýst er staða sérkennara við Sunnulækjarskóla í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2026. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennara sem vill kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu og skapandi skólastarf.
Í Sunnulækjarskóla mynda kennarar og aðrir fagaðilar árgangs árgangateymi. Árgangateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa í samvinnu við sína deildarstjóra. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp jákvæðan starfsanda og sterkt lærdómssamfélag í skólanum.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.