Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
ELKO

ELKO Keflavíkurflugvöllur - Sumarstarf

ELKO · Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
INTERIM alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-06

Við leitum að sumarstarfsmönnum í verslun ELKO flugstöð.

Störfin fela í sér að þjónusta viðskiptavini og finna úrlausnir fyrir þá. Viðkomandi þurfa að geta sýnt frumkvæði, tekist á við krefjandi verkefni og hugsað í lausnum.

Unnið er samkvæmt 5-5-4 vaktakerfi.

Menntunar- og hæfniskröfur

Íslenskukunnátta skilyrði

20 ára og eldri

Áhugi og vilji til að veita viðskiptavinum og samstarfsmönnum góða aðstoð og þjónustu

Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund

Skipulagsfærni

Hreint sakavottorð

Fríðindi í starfi

  • Árlegur líkamsræktarstyrkur
  • Afsláttarkjör hjá ELKO, Krónunni og N1
  • Aðgangur að velferðarpakka ELKO
  • Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
  • Öflugt félagslíf með reglulegum viðburðum
  • Starfsmannafélag með góðum vildarkjörum
  • Niðurgreiddur hádegismatur

ELKO starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Frekari upplýsingar veita Ragnar Örn Rúnarsson, ragnar@elko.is og Einar Snorri Sifjarson, einars@elko.is

Umsóknarfrestur til og með 6.apríl.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%