Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
ELKO

Þjónusturáðgjafi í þjónustuveri-sumarstarf

ELKO · Skógarlind 2, 201 Kópavogur
INTERIM alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-05

Hefur þú brennandi áhuga á þjónustu?

Langar þig að vinna á skemmtilegum vinnustað með margslungin og krefjandi verkefni unnin með frábærum samstarfsfélögum?

Við erum að leita eftir lausnamiðuðum einstaklingi í teymið okkar í þjónustuveri. Verkefni þjónustufulltrúa er bæði þjónusta og sala til viðskiptavina okkar.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Samskipti við viðskiptavini í gegnum samskiptakerfi ELKO

• Hámarka þjónustuupplifun viðskiptavina ELKO með stefnu ELKO að leiðarljósi

• Sér til þess að svörun erinda frá viðskiptavinum sé innan ákveðinna tímamarka og að svörun sé framkvæmd eftir gæða- og þjónustustöðlum ELKO

• Sinnir úrlausnum viðgerðar- og tryggingamála

• Sér til þess að úrlausn mála séu ávallt með hagsmuni viðskiptavini í huga

• Önnur verkefni sem stjórnandi felur starfsmanni

Náms- og hæfniskröfur

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Framhaldskólamenntun er kostur
  • Góð samskiptahæfni
  • Reynsla í þjónustustörfum er kostur
  • Góð tölvukunnátta

Við hvetjum alla, sem uppfylla hæfniskröfurnar, til að sækja um!

Tekið er vel á móti nýju starfsfólki þar sem það fær tilskylda þjálfun til þess að geta sinnt krefjandi og skemmtilegum verkefnum sem koma upp í daglegu starfi og þjónustu við viðskiptavini.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Helgi Snær Gestsson, Hópstjóri Þjónustuvers ELKO, helgi@elko.is

Umsóknarfrestur er til og með 5.apríl.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%