Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á barna- og unglingageðdeild

Landspítali · Dalbraut, 105 Reykjavík
PART_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-07

Metnaðarfullur hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á barna-og unglingageðdeild Landspítala, Dalbraut. Um er að ræða starf á legudeildinni og taka verkefni mið af áhugasviði, færni og fyrri reynslu. Þannig getur starfið hentað bæði nýju og reynslumiklu fagfólki.

Barna- og unglingageðdeild samanstendur af tveimur deildum á Landspítala, legudeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Unnið er í þverfaglegum teymum og mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi. Um vaktavinnu er að ræða og er starfið laust frá 1. maí 2026 eða eftir samkomulagi.

Á barna- og unglingageðdeild Landspítala á Dalbrautinni starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma.

Sækja um →

Launamat

1.333.158
kr / mánuð
Heimild: Ársreikningur fyrirtækis
Nánar: company avg (2023)
Ársstofa: 15.997.896 kr
Traust: 70%

Fyrirtæki

Landspítali
public
Meðallaun 1.333.158 kr/mán
Starfsmenn 4.984
Gögn úr ársreikningi 2023
Sjá fyrirtæki →