Í Djúpavogsskóla vantar okkur metnaðarfullan og jákvæðan einstakling til að sjá m.a. um ræstingar, gangavörslu og gæslu á næsta skólaári.
Um tímabundið starf er að ræða og getur viðkomandi hafið störf sem fyrst.
Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með um 70 nemendur. Skólinn vinnur í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggjur mikla áherslu á velferð, vellíðan og lausnarmiðaða nálgun.
Í Djúpavogsskóla er góður starfsandi og möguleiki á sveigjanlegum vinnutíma í samkomulagi við skólastjóra sem er næsti yfirmaður.