Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með um 70 nemendur. Skólinn vinnur í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggjur mikla áherslu á velferð, vellíðan og lausnarmiðaða nálgun.
Í Djúpavogsskóla er góður starfsandi og tækifærin eru mörg fyrir skapandi og jákvæða einstaklinga sem áhuga hafa á skólaþróun. Næsti yfirmaður er skólastjóri.
Um framtíðarstarf er að ræða, eingöngu er hægt að sækja um starfið á alfred.is.