Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Vertu með í að móta framtíð bráðaþjónustu

Landspítali · Fossvogur, 108 Reykjavík
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-03-30

Ný bráðamatsdeild er að opna og við leitum að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum sem vilja leggja sitt af mörkum við uppbyggingu hennar frá upphafi.

Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa áhrif á starfsemi, verklag og gæði deildarinnar og taka virkan þátt í þróun þjónustunnar.

Bráðamatsdeildin er viðbót við bráðaþjónustu Landspítala og er skipulögð að breskri fyrirmynd. Bráðamatsdeildin verður 20 rúma sólarhringsdeild þar sem þverfaglegt teymi sinnir sjúklingum með bráð veikindi á sviði lyflækninga. Markmið deildarinnar er að tryggja hratt og markvisst mat, greiningu og meðferð sjúklinga með samþættri teymisvinnu og skýrum ferlum.

Starfið er afar fjölbreytt og krefjandi og gefur mikla möguleika til starfsþróunar. Starfshlutfall er samkomulag, unnið er í vaktavinnu.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Sækja um →

Launamat

1.333.158
kr / mánuð
Heimild: Ársreikningur fyrirtækis
Nánar: company avg (2023)
Ársstofa: 15.997.896 kr
Traust: 70%

Fyrirtæki

Landspítali
public
Meðallaun 1.333.158 kr/mán
Starfsmenn 4.984
Gögn úr ársreikningi 2023
Sjá fyrirtæki →