Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í barna- og unglingageðlækningum á barna- og unglingageðdeild Landspítala.
Á er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn að 18 ára aldri. Unnið er í þverfaglegum teymum og í samvinnu við aðrar stofnanir.
Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd við sjúklinga okkar.
Starfshlutfall er 80-100% og starfið veitist frá 1. júní 2026 eða eftir nánara samkomulagi.