Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Flataskóli

Flataskóli óskar eftir þroskaþjálfa eða atferlisfræðingi

Flataskóli · Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-07

Flataskóla vantar metnaðarfullan þroskaþjálfa/atferlisfræðing til starfa

Viltu starfa í skapandi og faglegu skólastarfi þar sem vellíðan nemenda og gott samstarf eru í forgrunni?

Við leitum að þroskaþjálfa/atferlisfræðingi í 75–100% starf. Viðkomandi getur hafið störf strax ef möguleiki er á því, en annars 1. ágúst 2026. Um er að ræða fast starf.

Flataskóli er grunnskóli með um 300 nemendur í 1.–7. bekk og um 50 starfsmenn. Í skólanum ríkir faglegur metnaður og lögð er áhersla á leiðsagnarnám, uppbyggileg samskipti og vellíðan nemenda. Skólinn er einnig réttindaskóli hjá UNICEF.

Í Flataskóla er lögð áhersla á jákvætt starfsumhverfi, öflugt samstarf starfsfólks og leiðsagnarnám sem lykilþátt í námsumhverfi nemenda.

Áherslur í starfi skólans

  • Leiðsagnarnám og einstaklingsmiðað nám
  • Fagleg nálgun og metnaður í starfi
  • Gott samstarf í teymum og við foreldra
  • Stuðningur við nemendur með sérþarfir
Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%