Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Flataskóli

Flataskóli leitar að umsjónarkennurum fyrir skólaárið 2026-2027

Flataskóli · Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-07

Flataskóla vantar metnaðarfulla umsjónarkennara á yngsta- og miðstig.

Viltu starfa í skapandi og faglegu skólastarfi þar sem velferð nemenda og gott samstarf eru í forgrunni?

Við leitum að kennurum í fullt starf frá 1. ágúst 2026, um er að ræða fast starf. Öllum áhugasömum kennurum er velkomið að sækja um, óháð reynslu á ákveðnu stigi – við leggjum áherslu á hæfni og metnað.

Flataskóli er grunnskóli með um 300 nemendur í 1.–7. bekk og um 50 starfsmenn. Í skólanum ríkir faglegur metnaður og lögð er áhersla á uppbyggileg samskipti og vellíðan nemenda. Skólinn er einnig réttindaskóli hjá UNICEF.

Í Flataskóla er lögð áhersla á jákvætt starfsumhverfi, öflugt samstarf starfsfólks og leiðsagnarnám sem lykilþátt í námsumhverfi nemenda.

Áherslur í starfi skólans

  • Fámenni í nemendahópum
  • Góður stuðningur við kennara og nemendur
  • Skapandi og faglegt skólastarf
  • Leiðsagnarnám sem hluti af daglegu skólastarfi


Kennarar hafa jafnframt tækifæri til að taka aukafrídaga með því að vinna af sér tvo daga á önn.
Sýn skólans er að efla seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%