Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Landspítali

Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild

Landspítali · Hringbraut, 101 Reykjavík
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-08

Við óskum eftir að ráða sjúkraliða til starfa í okkar góða hóp á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG og bjóðum nýútskrifaða sjúkraliða jafnt sem reynslumikla velkomna. Unnið er í vaktavinnu, starfshlutfall 70%-100% og er upphaf starfa samkomulag.

Deildin þjónar einstaklingum sem glíma við sjúkdóma í efri og neðri hluta meltingarvegar og í þvagfærum. Á deildinni starfar kraftmikill hópur tæplega 100 starfsmanna, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og sérhæft starfsfólk. Hópurinn er frábær, skemmtilegur og samheldinn og vinnur saman í virkri teymisvinnu. Sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. Við bjóðum einstaklingsmiðaða aðlögun eftir þörfum hvers og eins með áherslu á fagmennsku og starfsþróun.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta eða að hámarki í 32 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari.

Sækja um →

Launamat

1.333.158
kr / mánuð
Heimild: Ársreikningur fyrirtækis
Nánar: company avg (2023)
Ársstofa: 15.997.896 kr
Traust: 70%

Fyrirtæki

Landspítali
public
Meðallaun 1.333.158 kr/mán
Starfsmenn 4.984
Gögn úr ársreikningi 2023
Sjá fyrirtæki →