Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
NPA miðstöðin

Ég óska eftir aðstoðarfólki 20 ára og eldra í NPA teymið mitt

NPA miðstöðin · Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
PART_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-06

Starfið felur í sér að aðstoða mig við flestar athafnir daglegs lífs vegna hreyfihömlunar, m.a. við heimilisstörf, persónulegt hreinlæti og fleira. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af því að umgangast börn.

Starfið felur einnig í sér að vera framlenging á mér í hverju sem ég vil taka mér fyrir hendur frá degi til dags í lífi, leik og starfi.

Ég leita eftir fólki sem er lausnamiðað í breytilegum aðstæðum og gott í mannlegum samskiptum.

Ég er að leita eftir tvemur starfsmönnum í hlutastarf. Um er að ræða dagvaktir bæði um virka daga og helgar þar sem unnið er viku í senn og svo fylgir frívika. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Eflingar, nánari upplýsingar má finna á Kjarasamningar fyrir NPA aðstoðarfólk

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, sem hægt er að lesa nánar um á: NPA miðstöðin

Ekki er gerð krafa um starfsreynslu eða sérstaka menntun, en lögð er áhersla á að umsækjendur temji sér stundvísi, jákvæðni, heiðarleika og virðingu í samskiptum.

Reykleysi á vinnutíma, ágætis Íslenskukunnátta og bílpróf eru skilyrði.

Vinnuaðstæður eru mjög góðar í nýju húsnæði með sérherbergi fyrir starfsmann.

Um er að ræða framtíðarstarf og æskilegt er að umsækjendur gætu hafið störf sem fyrst.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%