Við óskum eftir að ráða öflugan heilbrigðisgagnafræðing til starfa á Barnaspítala Hringsins, Landspítala. Starfið felst í almennum og sérhæfðum störfum heilbrigðisgagnafræðinga ásamt náinni vinnu með fagteymum Barnaspítalans. Verkefnin eru fjölbreytt og mikil þverfagleg samskipti.
Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma. Í boði er fjölbreytt og líflegt starf með tækifærum til starfsþróunar. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki. Heilbrigðisgagnafræðingar eru lykilstarfsfólk og þeirra framlag í daglegum störfum er mikils metið.
Starfshlutfall er samkomulag, unnið er í dagvinnu alla virka daga. Ráðið verður í starfið frá 1. júní 2026 eða eftir samkomulagi.