Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
NPA miðstöðin

Óska eftir NPA aðstoðarfólki

NPA miðstöðin · Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
PART_TIME alfred

Starfslýsing

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í 50 til 70% stöðu sem gæti hafið störf strax. 

Ég er 42 ára kona sem bý í 105 Reykjavík með kærasta mínum og 11 ára dóttir okkar. 

Ég óska eftir aðstoðarfólki 20 ára og eldra í NPA teymið mitt.

Starfið felur í sér að aðstoða mig við flestar athafnir daglegs lífs vegna mænuskaða, m.a. við heimilisstörf, persónulegt hreinlæti og fleira.

Starfið felur einnig í sér að vera framlenging á mér í hverju sem ég vil taka mér fyrir hendur frá degi til dags í lífi, leik og starfi. Ég hef mikinn áhuga á andlegum málum, listum, útiveru og að verja tíma mínum með fjölskyldu og vinum.

Ég leita eftir fólki sem er lausnamiðað í breytilegum aðstæðum og gott í mannlegum samskiptum.

Um er að ræða dagvaktir, virka daga sem og um helgar. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum Eflingar, nánari upplýsingar um launamál má finna á https://npa.is/adstodarfolk/kjarasamningar

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á: npa.is

Ekki er gerð krafa um starfsreynslu eða sérstaka menntun en lögð er áhersla á að umsækjendur temji sér stundvísi, jákvæðni, heiðarleika og virðingu í samskiptum

Reykleysi á vinnutíma, bílpróf og tölvukunnátta eru skilyrði

Vinnuaðstæður eru mjög góðar í nýju húsnæði með sérherbergi fyrir starfsmann.

Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af því að umgangast börn og viti að hlutverk aðstoðarfólks felst einnig í því að sinna þeim þörfum barna sem foreldrar sinna frá degi til dags, t.d. að útbúa nesti, aðstoða við heimanám, og sækja á æfingar osfrv.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%