Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
NPA miðstöðin

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á morgunvaktir

NPA miðstöðin · 107 Reykjavík
PART_TIME alfred

Starfslýsing

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á morgunvaktir 

37 ára kona í Vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoðarkonum í hlutastarf á morgunvaktir 

Æskilegt er að viðkomandi sé 40 ára eða eldri. Eldri konur sérstaklega velkomnar.

Konan er á einhverfurófi og felst starfið í aðstoða við daglegar athafnir og veita henni félagsskap.

Helstu áhugamál hennar eru prjónaskapur, ýmis önnur handavinna og söngur. Gott er að aðstoðarkonan hafi einnig áhuga á handavinnu.

Athugið að á heimilinu er lítill hundur.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.

Vaktir sem vantar á eru:

  • Alla mánudaga og þriðjudaga frá kl.9-13
  • Annar hver fimmtudag frá kl.9-13
  • Alla föstudaga frá kl.9-13

Hæfniskröfur:

  • Þolinmæði.
  • Frumkvæði.
  • Góð samskiptahæfni.
  • Að vera hvetjandi og skapandi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur en ekki skilyrði.
  • Íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Bílpróf og aðgengi að bíl er skilyrði.

Starfið hentar mjög vel með skóla eða annarri vinnu.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%