Heilsugæslan Sólvangi auglýsir eftir einstaklingi í afleysingarstarf móttökuritara. Um er að ræða 60-65% starf til sex mánaða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt, sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, sjúkraþjálfara og riturum. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga sem hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Góður starfsandi er á stöðinni, starfsaðstaða og starfsumhverfi eru til fyrirmyndar.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna inni á island.is/starfatorg