Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Fagstjóri meðferðateyma hjá Geðheilsumiðstöð barna

Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins · Vegmúli 3, 108 Reykjavík
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-09

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að faglegum leiðtoga til að leiða og þróa starfsemi meðferðateyma hjá Geðheilsumiðstöð barna. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af teymisvinnu í geðheilbrigðisþjónustu.

Fagstjóri meðferðateyma mun bera ábyrgð á starfsemi fjölskylduteymis 0-5 ára og ráðgjafar- og meðferðarteymis, vera faglegur leiðtogi og halda utan um mannauðstengd mál. Þetta er frábært tækifæri fyrir framsækinn einstakling sem vill taka þátt í spennandi verkefnum.

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu. Hjá Geðheilsumiðstöð barna starfa fjögur teymi í klínísku starfi, greiningarteymi yngri barna sem sinnir börnum á aldrinum 6-12 ára, greiningarteymi eldri barna sem sinnir börnum á aldrinum 12-18 ára, ráðgjafar- og meðferðarteymi og fjölskylduteymi 0-5 ára.

Um er að ræða 100% starf og ráðið er í starfið frá 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi

Sækja um →

Launamat

1.250.412
kr / mánuð
Heimild: Ársreikningur fyrirtækis
Nánar: company avg (2023)
Ársstofa: 15.004.944 kr
Traust: 70%

Fyrirtæki

Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu
public
Meðallaun 1.250.412 kr/mán
Starfsmenn 689
Gögn úr ársreikningi 2023
Sjá fyrirtæki →