Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að faglegum leiðtoga til að leiða og þróa starfsemi greiningateyma hjá Geðheilsumiðstöð barna. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af teymisvinnu í geðheilbrigðisþjónustu.
Fagstjóri greiningateyma mun bera ábyrgð á starfsemi greiningateyma yngri barna 6-12 ára og eldri barna 12-18 ára, vera faglegur leiðtogi og halda utan um mannauðstengd mál. Þetta er frábært tækifæri fyrir framsækinn einstakling sem vill taka þátt í krefjandi og spennandi verkefnum.
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu. Hjá Geðheilsumiðstöð barna starfa fjögur teymi í klínísku starfi, greiningarteymi yngri barna sem sinnir börnum á aldrinum 6-12 ára, greiningarteymi eldri barna sem sinnir börnum á aldrinum 12-18 ára, ráðgjafar- og meðferðarteymi og fjölskylduteymi 0-5 ára.
Um er að ræða 100% starf og ráðið er í starfið frá 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.