Laus er staða stuðningsfulltrúa á íbúðarkjarna í Vallengii 2 í sumarafleysingar.
Sumarstarf í Íbúðarkjarna í Grafarvogi
Í íbúðarkjarnanum Vallengi 2 starfar þéttur, samheldinn og skemmtilegur starfsmannahópur sem tekur vel á móti nýju fólki.
Leitast er eftir jákvæðum og metnaðarfullum stuðningsfulltrúa til starfa.
Starfið er fjölbreytt þar sem leitast er við að mæta þörfum og óskum íbúa hverju sinni. Starf stuðningsfulltrúa byggir á stefnu Reykjavíkurborgar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum.
Starfshlutfall er 80-100% með blönduðum vöktum, morgun, kvöld og helgarvöktum.