Ráðning frá 1. ágúst 2026
Við leitum að liðsmanni í öflugan hóp kennara á unglingastig skólans með áherslu á íslensku og stærðfræði. Við leitum að kennara sem er tilbúinn að koma í ný verkefni, samvinnu með samstarfsfólki og leiða skemmtilegan hóp nemenda.
Víðistaðaskóli er heildstæður skóli með 510 nemendur. Leiðarljós skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri, gudbjorgn@hafnarfjordur.is eða Valgerður Júlíusdóttir aðstoðarskólastjóri, valaj@vidistadaskoli.is.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er frá 25. mars til og með 8. apríl 2026.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.