Óskað er eftir öflugum stuðningsfulltrúa tímabundið til starfa í íbúðakjarna í Grafarvogi. Um er að ræða dagvaktir, kvöldvaktir, helgarvaktir og næturvaktir. Viðkomandi þarf að geta unnið allar vaktir. Um er að ræða 100% sumarstarf. Vegna sérstakra aðstæðna er eingöngu óskað eftir kvenkyns umsækjendum.
Í íbúðakjarnanum búa fimm konur hver í sinni íbúð. Starfsmenn sinna einnig stuðningi til tveggja íbúa sem búa sjálfstætt í húsnæði með stuðningi. Hlutverk stuðningsfulltrúa er að styðja og aðstoða íbúa við athafnir daglegs lífs, mæta þörfum íbúa á einstaklingsmiðaðan hátt.
Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.