Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Hafnarfjarðarbær

Félagsráðgjafi - Barnavernd

Hafnarfjarðarbær · Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-14

Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða félagsráðgjafa til starfa innan barnaverndar. 

Um er að ræða 100% stöðugildi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Félagsráðgjafi í barnavernd vinnur að verkefnum sem krefjast sérfræðiþekkingar á meðferð barnaverndarmála og vinnu í þverfaglegum teymum. 

Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Móttaka barnaverndartilkynninga og vinnsla barnaverndarmála í samræmi við barnaverndarlög
  • Samskipti og samvinna við börn og foreldra
  • Þverfagleg teymisvinna við vinnslu barnaverndarmála og mála sem unnin eru samkvæmt lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna
  • Samskipti og ráðgjöf við helstu stofnanir sem að málefnum barna og fjölskyldna koma
  • Þátttaka í stefnumótun, mótun verkferla, starfsáætlana og endurskoðun á reglum í málaflokknum
  • Bakvaktir 
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Meistaragráða MA/MS í félagsráðgjöf
  • Reynsla af störfum í barnavernd og/eða félagsþjónustu
  • Reynsla af samþættri þjónustu í þágu farsældar barna er kostur
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti
  • Geta til að vinna undir álagi

Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Þorkelsdóttir, deildarstjóri barnaverndar Hafnarfjarðar, kolbrunt@hafnarfjordur.is

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl nk. 

Ferilskrá, kynningarbréf og starfsréttindi fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%