Setbergsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stig
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.
Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfsmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á teymiskennslu, leiðsagnarnám og vaxandi hugarfar, fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar - og hæfniskröfur:
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.setbergsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.