Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir

Hafnarfjarðarbær · Drekavellir 14, 221 Hafnarfjörður
PART_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-07

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. 

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að leita að starfsfólki í tímabundið starf í sumar, með möguleika á fastráðningu í haust. Við leitum eftir starfsfólki sem getur hafið störf í byrjun júní. Starfshlutfall er 80 - 100 % starf í vaktavinnu. 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs 
  • Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði 
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum 
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum 
  • Almenn heimilisstörf 
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila 
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni 

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg 
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks 
  • Íslenskukunnátta skilyrði 
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði og samviskusemi 
  • Ágætis tölvukunnátta 
  • Starfið krefst góðs líkamlegs atgervis  
  • Ökuréttindi skilyrði  

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð. 

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.  

Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 544-2360, netfang: berglindbr@hafnarfjordur.is eða Gunnar Óli Gústafsson deildarstjóri, netfang: gunnarg@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 7.apríl 2026.

Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. 

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%