Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur í Endurhæfingarteymi

Reykjavíkurborg - Velferðarsvið · Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-06

Endurhæfing í heimahúsi, Norðurmiðstöð auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi til starfa. Starfshlutfall er 80-100% eftir samkomulagi. Starfsstöð er Efstaleiti 1.

Hugmyndafræði endurhæfingar í heimahúsi byggist á þverfaglegri endurhæfingu inn á heimili íbúans þar sem áhersla er lögð á hjálp til sjálfshjálpar. Þjónustan er tímabundin og ætluð þeim sem eru að kljást við færniskerðingu og þurfa heimaþjónustu.

Endurhæfingarteymið samanstendur af iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðingi, sjúkraþjálfara/íþróttafræðingi, sjúkraliðum og félagsliðum. Teymið veitir persónumiðaða þjónustu þar sem endurhæfingaráætlun byggist á þörfum íbúans og hefur það markmið að styðja og styrkja færni, auka bjargráð og virkja samfélagsþátttöku.

Unnið er eftir samþættri heimaþjónustu heimahjúkrunar, heimastuðnings og endurhæfingarteymis með það að markmiði að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%