Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50% starf í frístundaheimilið Holtasel
Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Holtaseli eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1. - 4. bekk farið í frístundaheimilið Holtasel. Starfsemi Holtasels er í skólanum. Holtasel býður upp á fjölbreytt tómstundastarf til kl. 16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Heiða Magnúsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5778 eða í gegnum netfangið margretm@hvaleyrarskoli.is eða Kristinn Guðlaugsson skólastjóri í síma 664-5833 eða í gegnum netfangið kristinn@hvaleyrarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2026.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.